14.12.2008 | 14:43
Það er nóg af lágvöruverslunum, það vantar alvöru úrval!
Frábært að auka samkeppnina en..
Er fólk yfirhöfuð sátt við úrvalið í stærri matvöruverslunum á Íslandi? Persónulega finnst mér vöruúrvalið ábótavant og því ekki jafn spennandi að versla hérna í samanburði við hin Norðurlöndin til dæmis.
Hyggst stofna lágvöruverðsverslun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hættu að éta og farðu nú að andskotast í boltann drengur!
Þorgeir Ómarsson (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 16:07
Úrvalið af erlendu drasli hérlendis, m.a. 2. flokks erlendum mat, er ein ástæðan fyrir hvernig komið fyrir fjárhag þjóðarbúsins og framleiðslugreinum.
Hlédís, 14.12.2008 kl. 17:08
Bíddu ég hef bara ekki fundið neina LÁGVÖRUVERSLUN á Íslandi þetta eru allt bölvaðar okur verslanir það er bara misjafnt hvað þeir okra mikið á okkur.
Gunnar Jónsson (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 20:07
Bý í Hollandi og get vottað um að vöruúrval á Íslandi er meira en hér. Vað það allavega fyrir hrun. Þeir selja ekki einu sinni Season-All á þessu guðsvolaða, flata frímerki sem þeir kanna Niðurland. Búsið er þó ódýrara og það bætir manni lífið.
Villi Asgeirsson, 14.12.2008 kl. 21:17
Gunni! Sammála þér - Okkur vantar Lág-Verðs-Verslanir. Hef skoðað okur-tilburðina og hækkanir, 2-3x neysluvísitöluhækkun, bæði í Krónunni og Bónus.
Villi! Er mögulegt að Hollendingar banni sölu á Season-All af því það inniheldur MSG sem er lífshættulegt sumum og öllum óhollt?!
Hlédís, 15.12.2008 kl. 06:53
Season-All inniheldur ekki MSG. Það er ekki bannað, vöruúrvalið nær bara ekki þetta langt.
Villi Asgeirsson, 15.12.2008 kl. 07:00
I guess I was wrong! Ég fór til Spánar í sumar og fannst það ævintýri að labba inní matvöruna þar.
Róbert Þórhallsson, 19.12.2008 kl. 13:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.